- 4 stk maíssnitsel
- Ca. 500g núðlur
- 1 stk rauðlaukur
- Nokkrir kirsuberjatómatar
- 1 msk fínsaxað engifer
- 1 stk kjarnhreinsaður chili
- 2 stk hvítlauksrif
- 1 msk olía
- 1 tsk sesamolía
- Knippi ferskt kóríander
- Salt og pipar
Aðferð:
Skerið tómata í tvennt og restina af grænmetinu í strimla. Hitið olíu í wokpönnu eða steikarpönnu og steikið grænmetið og hrærið vel í. Sjóðið núðlur eftir leiðbeiningum á pakka sigtið vel og blandið saman við grænmetið. Hrærið vel í, kryddið með salti og pipar. Að lokum setjið sesamolíu og kóríander í og blandið vel saman.
Steikið maíssnitsel á pönnu í ca.2 mín á hvorri hlið setjið núðlur á disk og leggið snitsel ofan á.